01.10.2000-07.10.2000

Tveir hjólreiðarmenn, Karl og Jón, lögðu samtímis af stað í átt til hvors annars frá tveimur stöðum sem 40 km skildu að.  Jón hjólaði með hraðanum 23 km/klst en Karl með hraðanum 17 km/klst.  Áður en þeir lögðu af stað sast fluga á nef Jóns, en um leið og Jón lagði af stað flaug flugan af stað í sömu átt með hraðanum 40 km/klst.  Þegar hún mætti Karli sneri hún samstundis við og flaug í átt til Jóns með hraðanum 30 km/klst (vindur blés frá Jóni til Karls).  Um leið og flugan mætti Jóni sneri hún við og þannig hélt þetta áfram. 
Finnið heildarvegalengdina sem flugan flaug uns hjólreiðarmennirnir mættust.